....Mein Fahrrad ist kaput! Sagði ég við vin minn Fahrrad Frank....
....Ja, das ist ein gross problem segir hann svo. En mergur málsins er að ég á vin sem kann að laga hjól því ég eyðilagði hjólið mitt síðastliðna hrekkjavöku,rúlluð inn í álpappír með jólaskraut í hárinu!....
…..Ótrúlegt en satt er mikill Hrekkjavökufílingur í Þjóðverjunum….Ég kaus að forða mér útúr húsi því ég átti lítið sem ekkert súkkulaði að bjóða krökkunum uppá og var ekki viss um að foreldrarnir myndu samþykkja það að stelpan í Wöhlertstrasse 14 (3og.L) myndi gefa bjór.
Ég semsagt forðaði mér í aðal Halloween party bæjarins á White Trash, sem er samkvæmt Costum (Danskt gellublað) aðal hipp og kúl GRUNGE staðurinn í Berlín….grafin í jörðina og læti. Þar rokkaði ég semsagt fram á nótt með Bride of Tjukkí.

Vaknaði svo hress í skólann daginn eftir…bara pínu að verða of sein, stökk út,hjólaði nokkra metra og uppgötvaði að hjólið mitt var bilað!!!! Jæja lítið við því annað að gera en að taka U-bahninn (subway system Berlínar)…Miðavélin á staðnum var þó ekki í góðum gír og spítti 5 evrunum mínum endurtekið út! Ég bjóst við því að næsta Bódega Zur Mella væri ekki opið svo snemma sólahrings og kaus að taka áhættuna…þar sem klukkan leið hratt, og stutt í Þýskustund….Ég var svo tekin í U-bahn með engann miða! Ég kaus að leika heimskann túrista sem talaði ekki þýsku sem var fullkomið því ekki talaði greyiðs lestarvörðurinn ensku....Are you sleeping in Berlin? segir guttinn sem þýddi þá...Býrðu í Berlín? What? segi ég Ich sprache kein deutch!..með tárin í augunum að sjálfsögðu....Ég rétti honum DSB wildcardið mitt (sem er afsl´ttarkort í danska lestarkerfið) Hann hélt nátturulega að það væri bankakortið mitt og skrifaði númerið niður!...því næst rétti ég honum danska studentskirteinið mitt og hann skrifaði nafnið mitt niður!.....kemur gaur!!!!!!!
En úr einu í annað.....Módel bransi minn er byrjaður....Í Berlín eru íslenskar stelpur nebbla HOT....eðaeitthvað!
Ég kaus að kíkka aðeins í HM í gær eftir skóla...nei ég lýg! Ég tók HM maraþonn, fór í 5 HM búðir.....Allavega er ég að skoða nýustu tískuna í HM þegar að ung stúlka labbar upp að mér og spyr hvort ég vilji vera hármódel....Ég veit ekki hvort ég á að taka því sem móðgun eða hrósi, en allavega hugsaði ég um peningana sem ég myndi spara í jólaklippingu þar sem hárgreiðslukona mín síðastliðið árið er Rósa klikkaða sambýliskona mín!!! Því næst fór ég á hárgreiðslustofuna og þar fitluðu þrír hommar og gellan við hárið á mér....Ég skildi ekki nákvæmlega hvað þessir hipp og kúl hársnyrtar ætla að gera við hausinn á mér, en verður maður ekki að gera eitthvað villt öðru hverju?...þannig á mánudaginn næstkomandi verð ég með Þýskt að aftan! spennandi!
Ánægð með sjálfan mig og litlausa dauða hárið mitt hjóla ég svo sem leið liggur á internet kaffihúsið mitt Oberholz...Sem er ekki frásögufærandi nema hvað að fyrsti maður sem ég sé þar er Agnar Jón Egilsson..Its small World! (Fyrir þá sem ekki vita þá er það gaurinn sem ég fór með til Azores eyja sumarið 2005) Þvílíkir endurfundir og það í Berlín. Hann var þá í brúðkaupsferðinni sinni með Marian ástmanni sínum og auðvita settumst við niður og fengum okkur einn kaldann sem endaði svo í kokteilum á hommabar í Kreuzberg þar sem veggirnir voru dekkoreraðir í bleiku loðskinni.....unaður....

Últraegóið mitt Ingrid (sem er sænskt súpermódel) og Aggi á Azores eyjum sumarið 2005..
Ég ætla svo að enda þetta blogg á mynd af mér og gamla skólastjórans míns úr Design skólanum mínum þar sem ég eyddi síðustu helgi.....